21.12.2011 14:05
Jólakveðja.
Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrenni
óskar öllum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ræktunarári.
Þökkum félögum félagsins og velunnurum
stuðninginn á árinu sem er að líða.
Nú stirnir af stjörnunni björtu,
Sem gleður oss höfugu hjörtu,
og heiðrar hvert mannanna barn.
Já stjarnan hún skilaboð færir,
og sendir um byggðir og ból.
Sem hjörtu mannanna hrærir,
og helga mun frið þessi jól.
og heiðrar hvert mannanna barn.
Já stjarnan hún skilaboð færir,
og sendir um byggðir og ból.
Sem hjörtu mannanna hrærir,
og helga mun frið þessi jól.
Skrifað af Helgu.
20.12.2011 14:11
Lokahrútur.
Lokahrúturinn
11-478
Lambhrútur fæddur á Skyldi í Helgafellssveit
Ferhyrndur og grár að lit
M: 06-021 Króka frá Selskógum í Stykkishólmi.
F: 09-475 Gríshóll frá Gríshóli í Helgafellssveit.
Algjör eðalmoli.
Agnar er hundrað prósent viss um að hann muni vera í fyrsta sæti
í flokki ferhyrndra veturgamalla hrúta næsta haust og leggur til að
keyptur verði skjöldur fyrir þann flokk fyrir haustið.
Eigandi Agnar Jónasson
Ef áhugi er að koma með ær til hans er það hægt.
Uppl. gefur Agnar 8937050
Og svona að lokum með alla þessa lituðu hrúta sem eru til í félaginu er þá ekki tilvalið að búa til einn glæsóttan hrút?
Hvernig litur er það?
Þetta er spurningakeppni, vegleg verðlaun í boði hrútatollur úr 10-156.
Sá hrútur gefur lit.
Þá er þessari svokallaðri "hrútakynningu" minni lokið og vil ég þakka félögum sauðfjárræktarfélagsins fyrir að taka þátt í þessu með mér og gera þetta mögulegt.
Bestu óskir um fögnuð og frið á jólahátíðinni og heillaríkt komandi ár.
Kveðja frá Hvarfi
Bestu óskir um fögnuð og frið á jólahátíðinni og heillaríkt komandi ár.
Kveðja frá Hvarfi
Skrifað af Helgu.
19.12.2011 14:33
Skjöldur frá Þingvöllum í Helgafellssveit.
Skjöldur 10-165
Skjöldur er fæddur á Skjaldfönn í Ísafjarðadjúpi.
Grágolsóttur að lit.
Veturgamall
Þ: 78 F: 122 Óm: 27 - 3.8 - 3.5
8 - 8 - 8.5 - 7.5 - 8.5 - 16.5 - 7 - 8 - 8 = 80
Gefur á heimabúi
Hvítt - grágolsótt - svartgolsótt - grátt.
F: 06-104 Gráni frá Skjaldfönn
M: 04-148 Svartgolsa frá Skjaldfönn.
MF: 02-183 Dreki frá Skjaldfönn.
FF: 05-201 kolur frá Skjaldfönn.
Fæddur einlembingur.
Gekk undir ánni ásamt öðru lambi.
Fínn og viðhafnarmikill hrútur,
sýnir svolítið skap, smart litur.
Skrítin tilviljun þegar ég er að fara yfir faðernið á Skildi þá sé ég að faðernið er hrútur fæddur 2006 og heitir Gráni 06-104 frá Skjaldfönn, þegar ég er að fara yfir faðernið á hrútnum Grím frá Skildi þá sé ég að faðernið er líka hrútur fæddur 2006 og heitir Gráni 06-304 frá Hólum Helgafellssveit, en þeir eru held ég ekkert skyldir, ha ha og sérstakt að annar hrúturinn skuli heita Skjöldur og heimili hins heitir Skjöldur.
Eigandi er Hilmar Hallvarðsson
Ef áhugi er á að koma með ær til hans er það hægt.
Uppl. gefur Hilmar 8941988
Skrifað af Helgu.
17.12.2011 11:24
Grímur frá Skyldi Helgafellssveit.
Grímur 10-476
Grímur er fæddur á Skyldi í Helgafellssveit
Gráflekkóttur að lit.
Veturgamall
Þ: 65 F: 125 óm: 28 - 3.1 - 4
8 - 7.5 - 8 - 8 - 8 - 16.5 - 7.5 - 8 - 8 =80.5
Grímur hefur unnið sér það til frægðar að vera
pabbi fjórlembingana fallegu sem fæddust í vor á Selskógum
sem sagt var hér.Frá Selskógum.
Gefur á heimabúi
Hvítt - gráflekkótt.
Kjötmat á heimabúi
haust 2011.
Fallþungi 12.3
Gerð 7
Fita 5.33
Tekið skal fram að Grímur var eingöngu notaður á
fáa gemlinga, svo það eru ekki mörg lömb á bak við tölunar.
F: 06-304 Gráni frá Hólum Helgafellssveit.
M: 00-008 frá Hólum Helgafellssveit.
Fæddur tvílembingur.
Rólegur og prúður hrútur, klæddur glæsilegum gráum serk,
fágætur litur.
Eigandi Agnar Jónasson
Ef áhugi er á að koma með ær til hans er það hægt,
uppl. gefur Agnar 8937050.
Skrifað af Helgu.
Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 292
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 139585
Samtals gestir: 20187
Tölur uppfærðar: 28.4.2024 09:51:48