08.09.2011 14:20
Fjallskilaboð 2011
Ágætu fjáreigendur, haustið 2011 verður gengið til fyrri leitar í Arnarhólsrétt
laugardaginn 17. september.
Réttað verður sunnudaginn 18. september og hefst réttarhald kl. 11:00 fyrir hádegi.
Til annarrar leitar verður gengið laugardaginn 1. október og réttað sama dag.
Réttarstjóri í Arnarhólsrétt er Lárus F. Hallfreðsson.
Frá Kárstaðahálsi að Svelgsárhrauni að því meðtöldu er gengið af eftirtöldum leitarmönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Kárstöðum 3 3
Hrísakot 0 0
Arnarstöðum 0 1
Hólum 5 4
Saurum 0 0
Stykkishólmi 0 0
Helgafelli 4 3
Skildi 0 2
Hofsstöðum 1 0
Þingvöllum 0 0
-----------------------------------------------
13 13
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag í Kárstöðum.
Fé sem ekki tilheyrir ofangreindum bæjum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Margrét Guðmundsdóttir.
Frá Svelgsárhrauni að Kerlingarskarðsvegi er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Gríshóli 7 7
Stykkishólmi 2 2
Skildi 2 1
------------------------------------------------------
11 10
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag á Gríshóli.
Fé sem ekki tilheyrir Gríshóli og Hólum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Guðrún Karólína Reynisdóttir Gríshóli.
Frá Kerlingarskarðsvegi á Tröllháls að Axarhamri er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Þingvöllum 2 3
Hraunhálsi 1 0
Stykkishólmi 12 11
Eyja og Miklaholtshreppi 0 1
Helgafelli 0 0
Skildi 1 1
Staðarbakki 0 0
-----------------------------------------------------
16 16
Leitarstjóri er Lárus F. Hallfreðsson Ögri. Fé af framantöldu leitarsvæði eiga leitarmenn að koma til Arnarhólsréttar.
1 maður frá Skildi lítur eftir því fé sem verður í girðingunni umhverfis Arnarhólinn
aðfaranótt fyrri réttardags. Bjarnarhafnarbændur sjá um leit á Bjarnarhafnarfjalli
og að koma úrtíningi til Arnarhólsréttar. Leitarstjóri er Brynjar Hildibrandsson,
réttarstjóri er Herborg Sigríður Sigurðardóttir.
Grundarrétt
1.rétt 2 menn frá Hraunhálsi með dráttarvél og vagn.
2.rétt 1 maður frá Eyrarsveit.
Fé sem kemur í þessar réttir flytji skilamenn til Arnarhólsréttar og tylkinni það eigendum.
Til að gera við Arnarhólsrétt og girðinguna umhverfis hana, vinna 1 maður frá Gríshóli og 1 maður frá Skildi. Viðgerð skal lokið fyrir gangnadaginn 17. september.
Gangnamenn eru hvattir til að vera í áberandi klæðnaði.
Benedikt Benediktsson.
Oddviti
Helgafellssveitar
Skrifað af Helgu.
06.09.2011 22:19
Fjallskilaboð 2011
Þá er komið að fjallskilum árið 2011 og frá Stykkishólmi fara.
Fyrri leit verður 17. september og seinni leit verður 1. október.
Frá Svelgsárhrauni að Kerlingarskarði. Mæting á Gríshóli kl 8:00
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fyrri leit Seinni leit
Þorvarður K. Einarsson 0 1
Einar Hólm Jónsson 1 1
Héðinn F. Valdimarsson 1 0
_____________________________________________________________________________________
2 2
Frá Kerlingarskarði að Axarhamri. Mæting við gömlu Mjósunda-brúna.
Fyrri leit kl. 7:00. Seinni leit kl. 7:30
__________________________________________________________________________________
Heimir Kúld Björnsson 0 1
Benedikt Frímansson 1 1
Ögur 6 4
Benjamín Ölversson 1 0
Guðmundur Benjamínsson 1 0
Gunnar Jónsson 1 1
Hannes Gunnarsson 0 1
Hermann Guðmundsson 0 1
Kristinn Már Pálsson 0 0
Kristján Berntsson 0 0
Þorsteinn Jónasson 1 1
Þorsteinn Kúld Björnsson 0 1
Gunnlaugur Árnasson 0 1
__________________________________________________________________________________
11 12
Stykkishólmi 5. sept. 2011
Hannes Gunnarsson.

01.09.2011 22:48
Lambaskoðun í Nýræktinni.
Jæja nú þarf að huga að hauststörfum og nú er búið að panta dag fyrir lambaskoðun í Nýræktinni og fáum við að vera inni í Holtseli eins og í fyrra og sama fyrirkomulag mun vera á. Miðvikudag 21 september kl. 10 er áætlað að skoða. Þetta er kanski snemmt fyrir suma en hentar ágætlega fyrir aðra fer eftir heimtum, þá vil ég benda á að hrútasýningin er eftir seinni leit og alltaf hægt að koma með í skoðun þangað.
Við þurfum að fá að vita um fjölda lamba og því vil ég biðja ykkur sem ætla að láta skoða að hafa samband við mig ( Helgu ) í síma 8571208 eða skrifa í athugasemd hér fyrir neðan ef það hentar betur.
Það þarf að vera búið að vigta lömbin áður en komið er með þau til skoðunar.

ALLIR VELKOMNIR
í tilefni af því, vantar hér botn
Læt ég skoða lömbin tvö
fjögur, sex eða átta.
í tilefni af því, vantar hér botn
Læt ég skoða lömbin tvö
fjögur, sex eða átta.
Skrifað af Helgu.
27.08.2011 09:00
Handbók bænda og sveppatýnsla
Handbók bænda er komin út Sjá hér bondi.is
Það eru upplýsingar í bókinni um villta matsveppi í náttúrunni, þá datt mér í hug að sýna ykkur mynd sem Steini tók af matsvepp sem hann týndi út í náttúrunni um daginn.
Skrifað af Helgu.
22.08.2011 18:31
Hrútadómar á Ströndum.
Það gekk aldeilis vel hjá okkar félagsmönnum í hrútaþuklinu á laugardaginn s.l.
Sjá hér strandir.is
TIL HAMINGJU STELPUR
Ég setti inn myndir af mótinu í myndaalbúm undir heitinu menningarferðir.
Sjá hér strandir.is
TIL HAMINGJU STELPUR
Ég setti inn myndir af mótinu í myndaalbúm undir heitinu menningarferðir.
Skrifað af Helgu.
Flettingar í dag: 80
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 292
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 139547
Samtals gestir: 20174
Tölur uppfærðar: 28.4.2024 07:03:58