Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrennis

Félag með metnað

Um:

Formaður: Lára Björg Björgvinsdóttir Ritari: Valdimar Kúld Björnsson Gjaldkeri: Guðrún K. Reynisdóttir Umsjón með heimasíðu: Sumarliði Ásgeirsson Ferðanefnd: Þorsteinn Kúld Björnsson og Gunnar Jónsson Fræðslufulltrúi: Harpa Björk Eiríksdóttir Reikn. Sauðfjárræktarfél. 0309-13-300141 Kt.150657-5639 Hrútafélagið Jökull 0309-13-300140 Kt.150657-5639

Tenglar

17.04.2013 18:15

Fundur

Aðalfundur verður í hrútafélaginu Jökli miðvikudaginn 24..apríl 2013

Fundurinn verður haldinn í fjárhúsinu hjá Benjamín Ölverssyni

Mattablett kl.20.30

Dagskrá:

 

1.Fundur settur

2.Skýrsla formanns

3.Reikningar

4.Kosning stjórnar

5.Önnur framtíðar mál

 

Stjórnin

11.04.2013 05:04

Ferðin okkar

Nú hljóta allir að vera komnir í ferðagírinn og spennan magnast upp og það sem meira er, það er uppselt í ferðina okkar.
Glæsilegt það.
 
En í þessari ferð okkar heimsækjum við tvö sauðfjárbú,
Urriðaá og Þóroddsstaðir.

Gunnar og Matthildur bændur á Þóroddsstöðum munu taka á móti okkur og segja okkur frá sínu búi og ræktun á fé sem við ættum að kannast við, við sem lesum hrútaskrána, því frá Þóroddsstöðum hafa allavega ratað tveir hrútar á sæðingastöðina.
Það eru þeir Ljóri 95-828 og Oddur 02-942.
Kjötmat hjá þeim er gríðargott, á síðasta hausti fóru 584 lömb í sláturhús með fallþunga uppá 17,23 kg. Vöðvafylling 9,29 og fitu 5,84

Sigvaldi og Þóra bændur á Urriðaá munu taka á móti okkur og segja frá sínu búi og ræktun á fé sem er gríðarlega vel gert.
Vöðvafylling úr kjötmati í haust er 10,60 fita 7,70 og fallþungi 19,37 á 582 lömbum sem rötuðu í sláturhúsið.
Þau samstilltu/ þ.s.með nýjustu tækninni, sprautuðu 60 ær hjá sér í desember s.l.  og notaðir voru hrútar/ekki sæddar, það er fróðlegt að vita hvernig til tóks hjá þeim með það. Þá bera ærnar um miðjan apríl og lömbin enda í sumarslátrun.
Fróðlegt.

Við hlökkum til að koma og sjá , glæsilegur árangur í sauðfjárrækt.
Takk fyrir að taka á móti okkur.
 

05.04.2013 19:10

Ferðin okkar

Ferðaáætlun.

Lagt verður af stað frá Bensó kl. 09:30 laugardaginn 13.Apríl n.k.
Staðarskáli: Stutt wc stopp.
Þóroddsstaði í Hrútafirði: Sauðfjárbú skoðað.
Sláturhús SKVH Hvammstanga: Sláturhús skoðað og snædd kjötsúpa í boði SKVH.
Guðni Þór Ólafsson Prófastur, Melstað, mun taka okkur að sér og fara með okkur hring, með viðkomu á Búrfelli, Bjargi og kirkjunni á Efri-Núp, Miðfirði.
Urriðaá í Miðfirði: Sauðfjárbú skoðað.
Sveitasetrið Gauksmýri, Línakradal: Grillhlaðborð að hætti meistarans á Gauksmýri.
Mat á Gauksmýri greiðir hver fyrir sig (kr. 4.950.-) sértilboð fyrir okkur kr. 4.250.- 
Fargjald er kr. 3.000.- greiðist í peningum í rútu við upphaf ferðar.
Staðarskáli: Stutt wc stopp.
Áætlaður komutími í Stykkishólm kl. 23.00-24.00
Bílstjóri: Guðmundur Hjartarson Útvegsbóndi, Helgafelli, Helgafellssveit.
Fararstjóri: Gunnar Jónsson Ferðanefnd félagsins, honum til aðstoðar allir sem vilja segja fróðleiksmola.


 

04.04.2013 23:00

Afkvæmarannsóknir 2012

Hrútar með hæsta heildareinkunn í afkvæmarannsóknunum haustið 2012

Það eru tveir hrútar á þessum lista fæddir hér í okkar félagi.yes

Dropi Kúld 11-392   F: Njörður 09-692  Kjötmat 126,9  Líf/lömb 144,9  Heild 135,9
Fæddur í Hvarfi, Stykkishólmi / Eig. Þaravellir Innri-Akraneshrepp,Borg.

Vafi 09-510  F: Þróttur 04-991  Kjötmat 107,7  Líf/lömb 133,8  Heild 120,8
Fæddur í Hólatúni, Stykkishólmi / Eig. Hólatún

  Hrútar sem stóðu efstir yfir landið haustið 2012    rml.is  Sjá hér lista  
 

04.04.2013 17:00

Aðalfundur

Aðalfundur sauðfjárræktarfélags Helgafellssveitar og nágrenni verður haldinn fimmtudagin 11. Apríl í verkalýðshúsinu í Stykkishólmi kl 20.30. Dagskrá:  venjuleg aðalfundar störf, inntaka nýrra félaga.  Hjalti dýralæknir verður gestur og fjallar hann um sauðfjársjúkdóma.

Flettingar í dag: 234
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 234
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 139409
Samtals gestir: 20156
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 21:31:24