Færslur: 2011 September
23.09.2011 00:00
Hrútasýning.
Kaffiveitingar og verðlaunaafhending.
20.09.2011 13:02
Svona er lífið
Litla lambið.
Lambið hinsta er heimt af fjalli
haustið kemur með frosti og snjó.
Á því finnst naumast nokkur galli
Næg er fitan um hupp og bóg.
Góð í feld er gæran hvíta
Góð í sokk er ullin mjúk
Það er öldungis úti að skíta
undir hrímköldum fjallahnjúk.
Er það kemur í heimahaga
hnífinn brýni ég lengi og vel.
Byssuhólkinn ég hrifsa af snaga
högl og púður ég í hann tel.
Svo við ljóman sólarbjarta
satt og grandlaust lít ég það.
Geng svo mót því með glöðu hjarta
gegnum höfðuið skýt ég það.
Bregð svo hnífi á barkann unga
bunar dreyri í stampinn minn
upp í sviðunum titrar tungan
títt ég brosi í kampinn minn.
Hræri ég með hönd í blóði
hræri ég í erg og gríð.
Eins og afi minn Ari fróði
ávallt gerði í sláturtíð.
Gripinn fögnuði flæ ég búkinn
flestar lappir sker ég af.
Hristi úr görnum heitan kúkinn
Hluta lambið sem drottinn gaf.
Pott á hlóðir hreykinn set ég
hlakka yfir felldri bráð.
Ljúf mun stundin er lambið ét ég
Lifi sauðfé í drottins náð.
09.09.2011 18:43
Sauðburður
Hún er rétt austan við Stafá og bar þarna í dag.
08.09.2011 14:20
Fjallskilaboð 2011
Ágætu fjáreigendur, haustið 2011 verður gengið til fyrri leitar í Arnarhólsrétt
laugardaginn 17. september.
Réttað verður sunnudaginn 18. september og hefst réttarhald kl. 11:00 fyrir hádegi.
Til annarrar leitar verður gengið laugardaginn 1. október og réttað sama dag.
Réttarstjóri í Arnarhólsrétt er Lárus F. Hallfreðsson.
Frá Kárstaðahálsi að Svelgsárhrauni að því meðtöldu er gengið af eftirtöldum leitarmönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Kárstöðum 3 3
Hrísakot 0 0
Arnarstöðum 0 1
Hólum 5 4
Saurum 0 0
Stykkishólmi 0 0
Helgafelli 4 3
Skildi 0 2
Hofsstöðum 1 0
Þingvöllum 0 0
-----------------------------------------------
13 13
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag í Kárstöðum.
Fé sem ekki tilheyrir ofangreindum bæjum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Margrét Guðmundsdóttir.
Frá Svelgsárhrauni að Kerlingarskarðsvegi er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Gríshóli 7 7
Stykkishólmi 2 2
Skildi 2 1
------------------------------------------------------
11 10
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag á Gríshóli.
Fé sem ekki tilheyrir Gríshóli og Hólum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Guðrún Karólína Reynisdóttir Gríshóli.
Frá Kerlingarskarðsvegi á Tröllháls að Axarhamri er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Þingvöllum 2 3
Hraunhálsi 1 0
Stykkishólmi 12 11
Eyja og Miklaholtshreppi 0 1
Helgafelli 0 0
Skildi 1 1
Staðarbakki 0 0
-----------------------------------------------------
16 16
Leitarstjóri er Lárus F. Hallfreðsson Ögri. Fé af framantöldu leitarsvæði eiga leitarmenn að koma til Arnarhólsréttar.
1 maður frá Skildi lítur eftir því fé sem verður í girðingunni umhverfis Arnarhólinn
aðfaranótt fyrri réttardags. Bjarnarhafnarbændur sjá um leit á Bjarnarhafnarfjalli
og að koma úrtíningi til Arnarhólsréttar. Leitarstjóri er Brynjar Hildibrandsson,
réttarstjóri er Herborg Sigríður Sigurðardóttir.
Grundarrétt
1.rétt 2 menn frá Hraunhálsi með dráttarvél og vagn.
2.rétt 1 maður frá Eyrarsveit.
Fé sem kemur í þessar réttir flytji skilamenn til Arnarhólsréttar og tylkinni það eigendum.
Til að gera við Arnarhólsrétt og girðinguna umhverfis hana, vinna 1 maður frá Gríshóli og 1 maður frá Skildi. Viðgerð skal lokið fyrir gangnadaginn 17. september.
Gangnamenn eru hvattir til að vera í áberandi klæðnaði.
Benedikt Benediktsson.
Oddviti
Helgafellssveitar
06.09.2011 22:19
Fjallskilaboð 2011
Fyrri leit verður 17. september og seinni leit verður 1. október.
Frá Svelgsárhrauni að Kerlingarskarði. Mæting á Gríshóli kl 8:00
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fyrri leit Seinni leit
Þorvarður K. Einarsson 0 1
Einar Hólm Jónsson 1 1
Héðinn F. Valdimarsson 1 0
_____________________________________________________________________________________
2 2
Frá Kerlingarskarði að Axarhamri. Mæting við gömlu Mjósunda-brúna.
Fyrri leit kl. 7:00. Seinni leit kl. 7:30
__________________________________________________________________________________
Heimir Kúld Björnsson 0 1
Benedikt Frímansson 1 1
Ögur 6 4
Benjamín Ölversson 1 0
Guðmundur Benjamínsson 1 0
Gunnar Jónsson 1 1
Hannes Gunnarsson 0 1
Hermann Guðmundsson 0 1
Kristinn Már Pálsson 0 0
Kristján Berntsson 0 0
Þorsteinn Jónasson 1 1
Þorsteinn Kúld Björnsson 0 1
Gunnlaugur Árnasson 0 1
__________________________________________________________________________________
11 12
Stykkishólmi 5. sept. 2011
Hannes Gunnarsson.
- 1
- 2