15.04.2014 15:31
Kindurnar hennar Aðalheiðar
Myndir teknar í Sævangi 2012
Flottar kindur
Verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur
Sjá hér Freyjulundur.is
04.03.2014 15:16
Hverjir eru bestir?
Sólin farin að hækka á lofti og farið að styttast í sauðburð, er þá ekki upplagt að koma með niðurstöður haustsins. Set hérna inn til "fróðleiks" niðurstöður kjötmatsskýrslna eftir hrútum hjá okkur á Hraunhálsi. Vandamálið er að þegar notaðir eru of margir hrútar á of fáar ær koma varla marktækar niðurstöður en samt er fróðlegt að skoða þær og oft geta niðurstöðurnar gefið vissar vísbendingar um hvers má vænta af hrútunum. Ef tekið er með í dæmið að það er valið undir heimahrútana eftir skildleika, aldur lambanna er misjafn t.d. eru sæðislömbin elst (fæðast fyrst) það getur verið talsverður munur á hversu hátt hlutfall afkvæma enda í sláturhúsi (Öllum lömbum undan þeim Soffa, Spaða,Buska,Húma, og Jökli var slátrað) Hlutfall þrílembinga var mest hjá Mekki, Lömbin undan Húma voru yngst og Lömbin undan Veig voru svo til eingöngu gemlingslömb. Það skal tekið fram að það voru tvær gimbrar seldar og ein sett á hjá okkur undan Prúð. Sæðishrútarnir eru feitletraðir. Nafn fjöldi þyngd Vöðvi fita kjötmatseinkun Steri 1 20,7 11,0 9,0 100,6 Kvistur 3 21,0 11,0 10,3 92,2 Brjánn 2 21,9 9,5 8,5 99,9 Forði 1 21,3 11,0 8,0 103,8 Gaur 4 18,6 10,3 6,5 116,4 Strengur 1 20,5 8,0 8,0 97,7 Soffi 1 20,9 8,0 9,0 95,1 Prúður 1 16,0 8,0 8,0 94,8 Sváfnir (f.Lumbri) 3 19,0 11,0 8,3 103,8 Demantur(f.Frosti) 15 17,0 9,2 6,3 119,2 Spaði(f.Sokki) 3 18,3 10,0 8,7 95,1 Jarmakoff(f.Lord) 7 17,2 9,7 7,4 102,2 Buski (f.Gosi) 2 17,1 9,5 5,0 112,8 Labbakútur(f.Sigurf) 8 17,4 9,9 6,6 117,4 Húmi (f.Dalur) 10 16,4 9,2 6,6 108,1 Gumi(f.Sigurfari) 12 16,4 9,3 8,0 84,8 Veigur (Lumbri) 13 18,7 10,3 8,5 95,3 Mökkur (f.Sváfnir) 19 17,2 10,1 8,0 96,3 Jökull (f.Borði) 4 19,0 10,3 8,8 96,0 Slátrað var dagana: stk þungi gerð fita 12/9 24 18,9 10,4 8,6 1/10 90 17,4 9,6 7,6 22/10 5 21,4 11,0 7,8
|