01.06.2017 23:54
Litir
Hvít ær undan Jökli félagshrút, þar komu tvö lömb gimbur og hrútur.
Gimbrin er svarflekkótt en hrúturinn hvítur nema smá gulur og svartur blettur á hálsi.
Faðir lambanna er hvítur.
|
22.05.2017 10:47
Litir
Mórauð ær og Golsi félagshrútur, þar komu tvö hrútlömb,
annað lambið svart og hitt svargolsótt eða grágolsótt.
27.04.2017 17:41
Sviðasulta
Gott að eiga til svona á sauðburði
5 sviðahausar
10 lítrar vatn
6 msk. gróft salt
3 blöð matarlím
Hitið vatnið, setjið salt í það. Leggið sviðið í sjóðandi vatnið og sjóðið við vægan hita í 1 1/2 - 2 Klst. Takið úr soðinu,Kælið örlítið og takið allan mat af beinunum. Skerið kjötið, svo að það verði ekki í mjög stórum bitum. Fjarlægið augasteininn og eyrun. Leggið síðan í djúpt, aflangt mót. Notið helming soðsins. Sjóðið soðið niður, þar til það er u.þ.b. 1 lítri. Leggið matarlímið í kalt vatn í 10 mín. Vindið upp úr vatninu og bræðið í heitu soðinu. Hellið soðinu yfir sviðin. Kælið fljótt.
|