11.11.2015 19:32
Félagshrútar
ómv 30-2,5-4,0 stig 8,0-9,0-9,0-8,5-9,0-18,0-8,0-8,0-9,0=86,5
|
25.10.2015 22:32
Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi
Héraðssýning var haldinn 16. og 17. október og var góð mæting bæði af fólki og fé
|
Fyrir þá sem ekki gátu mætt á sýninguna set ég hér inn yfirlit yfir þá hrúta sem kepptu vestan megin girðingar efstir eru hyrndir hvítir lamhrútar.
21.10.2015 16:54
Hrútaþing 2015
Sælir félagar. Áætlað er að halda Hrútaþing þann 7. nóv. nk. í Lionshúsinu Stykkishólmi. Dagskrá verður með svipuðu sniði og í fyrra. Endilega komið með hugmyndir að skemmtiefni o.fl. Nánar auglýst þegar nær dregur. Hafið samband við okkur fyrir 26. okt. Lilja s: 867 4577 og kben s: 868 1406
10.10.2015 23:16
Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2015
Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2015
* Þetta er eingöngu sýning á lambhrútum.
* Hrútar verða að vera fæddir á Snæfellsnesi og því má ekki koma með aðkeypta hrúta.
* Allir hrúta skulu vera stigaðir, þeir verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun.
* Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki gert, er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni.
* Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki. Þ.e. 3 kollótta, 3 hyrnda, og 3 mislita og/eða ferhyrnda.
* Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við um mislita og ferhyrnda hrúta.
01.10.2015 09:28
Hrútasýning
Keppt verður um hyrnda, kollótta og mislita veturgamla hrúta.
Einnig er keppt um þrjá bestu lambhrútana óháð hornalagi og lit.
Kaffiveitingar og verðlaunaafhending.
Allir velkomnir.