08.09.2011 14:20
Fjallskilaboð 2011
Ágætu fjáreigendur, haustið 2011 verður gengið til fyrri leitar í Arnarhólsrétt
laugardaginn 17. september.
Réttað verður sunnudaginn 18. september og hefst réttarhald kl. 11:00 fyrir hádegi.
Til annarrar leitar verður gengið laugardaginn 1. október og réttað sama dag.
Réttarstjóri í Arnarhólsrétt er Lárus F. Hallfreðsson.
Frá Kárstaðahálsi að Svelgsárhrauni að því meðtöldu er gengið af eftirtöldum leitarmönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Kárstöðum 3 3
Hrísakot 0 0
Arnarstöðum 0 1
Hólum 5 4
Saurum 0 0
Stykkishólmi 0 0
Helgafelli 4 3
Skildi 0 2
Hofsstöðum 1 0
Þingvöllum 0 0
-----------------------------------------------
13 13
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag í Kárstöðum.
Fé sem ekki tilheyrir ofangreindum bæjum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Margrét Guðmundsdóttir.
Frá Svelgsárhrauni að Kerlingarskarðsvegi er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Gríshóli 7 7
Stykkishólmi 2 2
Skildi 2 1
------------------------------------------------------
11 10
Fé af þessu leitarsvæði skal rekið inn og réttað sama dag á Gríshóli.
Fé sem ekki tilheyrir Gríshóli og Hólum skal færa til Arnarhólsréttar af leitarmönnum.
Leitar og réttarstjóri er Guðrún Karólína Reynisdóttir Gríshóli.
Frá Kerlingarskarðsvegi á Tröllháls að Axarhamri er gengið af eftirtöldum mönnum.
í fyrri leit í seinni leit
Frá
Þingvöllum 2 3
Hraunhálsi 1 0
Stykkishólmi 12 11
Eyja og Miklaholtshreppi 0 1
Helgafelli 0 0
Skildi 1 1
Staðarbakki 0 0
-----------------------------------------------------
16 16
Leitarstjóri er Lárus F. Hallfreðsson Ögri. Fé af framantöldu leitarsvæði eiga leitarmenn að koma til Arnarhólsréttar.
1 maður frá Skildi lítur eftir því fé sem verður í girðingunni umhverfis Arnarhólinn
aðfaranótt fyrri réttardags. Bjarnarhafnarbændur sjá um leit á Bjarnarhafnarfjalli
og að koma úrtíningi til Arnarhólsréttar. Leitarstjóri er Brynjar Hildibrandsson,
réttarstjóri er Herborg Sigríður Sigurðardóttir.
Grundarrétt
1.rétt 2 menn frá Hraunhálsi með dráttarvél og vagn.
2.rétt 1 maður frá Eyrarsveit.
Fé sem kemur í þessar réttir flytji skilamenn til Arnarhólsréttar og tylkinni það eigendum.
Til að gera við Arnarhólsrétt og girðinguna umhverfis hana, vinna 1 maður frá Gríshóli og 1 maður frá Skildi. Viðgerð skal lokið fyrir gangnadaginn 17. september.
Gangnamenn eru hvattir til að vera í áberandi klæðnaði.
Benedikt Benediktsson.
Oddviti
Helgafellssveitar
Skrifað af Helgu.
Flettingar í dag: 109
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 215
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 132627
Samtals gestir: 19375
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 16:05:32