03.07.2013 06:55
Afkvæmi Prúðs, Strengs og Forða
Þegar lömbin fæddust undan Prúð frá Ytri-Skógum vöktu þau nú ekki sérstaka athygli mína, nema þá helst fyrir að vera frekar smá og ræfisleg. En þau uxu verulega í áliti hjá mér þegar þau stækkuðu. Við fengum tvær gimbrar og tvo hrúta undan Prúð. Og hver veit nema að þarna sé komin þessi fíni lífhrútur; sem er hvítur ekki út frá Rafti og Kveikur kemur ekki fyrir nema einu sinni í ættartölunni hans og það í fimmta ættlið svoleiðis hrútar eru nú ekki á hverju strái. Þessi hérna fyrir neðan eru undan Prúð og Ímu en hún er undan Ísskáp Fannarssyni.
Fengum hrút og gimbur undan Streng frá Árbæ nokkuð pottþétt lífgimbur þar á ferð ef hún skilar sér í haust. Hérna fyrir neðan er Snegla með Strengs afkvæmin.
Fyrir neðan er svo mynd af Ágjöf með tvo hrúta undan Forða frá Heydalsá en hefði nú frekar kosið að fá gimbrar undan honum.

Skrifað af Laugu
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 374
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 140966
Samtals gestir: 20490
Tölur uppfærðar: 2.5.2024 09:29:00