Færslur: 2010 Apríl
19.04.2010 00:00
Hrútar
Nú er komið að seinni hrútnum hans Högna Bæringssonar í Stykkishólmi sá hrútur heitir Bessi 09-182. Bessi er hvítur hyrndur og mjög þroskaður hrútur, hann er bollangur og fallegur á velli.
F:Púki 06-807 M:Bessa 05-147. Bessi var 53 kíló í lok ágúst og fótleggur 110 ómv 30-3,3-3,5
stig 8,0-8,0-8,5-8,5-9,0-17,5-8,0-8,0-8,5=84,0
Skrifað af Eiríki
06.04.2010 15:47
Málþing Landssamtaka sauðfjárbænda í tilefni af 25 ára afmæli samtakann
9. apríl 2010 kl. 13:00 til 17:00
Fundarstaður: Hótel Saga, (ráðstefnusalurinn Stanford)
Fundarstjórar: Emma Eyþórsdóttir og Þórarinn Pétursson
Dagskrá:
13:00 Saga Landssamtaka sauðfjárbænda
Jóhannes Sigfússon, fv. formaður LS
13:30 Rekstrarlíkan fyrir sauðfjárbú og niðurstöður tilrauna með lambaeldi
Jóhannes Sveinbjörnsson, LbhÍ
14:00 Blendingsrækt með hyrnt og kollótt fé.
Oddný Steina Valsdóttir, EE og JVJ
14:30 Kaffihlé
15:00 Rafrænt kjötmat - niðurstöður þróunarvinnu
Eyþór Einarsson, EE og JVJ
15:30 Þróun ræktunarstarfs og afkvæmarannsókna
Jón Viðar Jónmundsson, BÍ
16:00 Sérafurðir úr lambakjöti, reynsla og möguleikar
Guðjón Þorkelsson o.fl. Matís
16:30 Almennar umræður og fyrirspurnir
Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Fundarstaður: Hótel Saga, (ráðstefnusalurinn Stanford)
Fundarstjórar: Emma Eyþórsdóttir og Þórarinn Pétursson
Dagskrá:
13:00 Saga Landssamtaka sauðfjárbænda
Jóhannes Sigfússon, fv. formaður LS
13:30 Rekstrarlíkan fyrir sauðfjárbú og niðurstöður tilrauna með lambaeldi
Jóhannes Sveinbjörnsson, LbhÍ
14:00 Blendingsrækt með hyrnt og kollótt fé.
Oddný Steina Valsdóttir, EE og JVJ
14:30 Kaffihlé
15:00 Rafrænt kjötmat - niðurstöður þróunarvinnu
Eyþór Einarsson, EE og JVJ
15:30 Þróun ræktunarstarfs og afkvæmarannsókna
Jón Viðar Jónmundsson, BÍ
16:00 Sérafurðir úr lambakjöti, reynsla og möguleikar
Guðjón Þorkelsson o.fl. Matís
16:30 Almennar umræður og fyrirspurnir
Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Skrifað af Eiríki
06.04.2010 14:27
Menningarferð
Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrennis boðar til skemmti og menningarferðar laugardaginn 17. apríl. Lagt verður af stað um kl. 10:00 að morgni og haldið í suður átt og stefnan tekin að Syðri Haukatungu þar sem við skoðum í húsin hjá Ásbirni. Að því loknu verður haldið að Snorrastöðum og nýju fjárhúsin skoðuð. Að lokum verður farið að Lyngbrekku þar sem hátíðin Mýrareldar standa yfir. Áætluð heimferð verður um kl. 17:00. Þeir sem ætla að koma með skrái sig hjá Gunna Jóns. í síma 8946369 fyrir mánudaginn 12. apríl
Skrifað af Eiríki
01.04.2010 09:39
Hrútar
Nú kikjum við á hrút sem er á Einarsstöðum og í eigu Högna Bæringssonar í Stykkishólmi, þessi hrútur heitir Dabbi 09-181. Dabbi er hvítur hyrndur og gríðarlega þroskamikill, og vel gerður hrútur algjör holdaköggull, bollangur, láfættur og afskaplega gæfur og rólegur. F:Demantur 07-182 M:Bessa 05-005 MF:Dreitill sonur frá Berserkseyri FF: Kveikur 05-965. Dabbi 09-181 var 56 kíló í lok ágúst.fótleggur 107 ómv-32-3,1-4,5 stig 8,0-8,5-9,0-9,0-9,0-18,5-7,5-8,0-8,5=86,0
Skrifað af Eiríki
- 1
Flettingar í dag: 204
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 745
Gestir í gær: 258
Samtals flettingar: 143908
Samtals gestir: 21136
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 04:36:19