Flokkur: Námskeið
10.09.2018 13:10
Þuklnámskeið 4. Sept. 2018
Aftur settumst við á skólabekk félagar Sauðfjárræktarfélags Helgafellssveitar og nágrennis og nú á þuklnámskeið.
Í nóvember var það holdstigunarnámskeið og nú þukl.
Það voru þeir Lárus og Eyþór frá RML sem fóru yfir ræktunarmarkmiðin, Sjá þau hér https://www.rml.is/is/kynbotastarf/saudfjarraekt/raektunarmarkmid,
Í hádeginu var boðið upp á kjúklingasúpu Hörpu, smurt brauð og salat.
Svo var farið í Bjarnarhöfn, þar sem verkleg kennsla fór fram.
Hér er verið að rýna í ullina, hvort þar leynast gular illhærur.
|
03.11.2017 15:32
Holdstigunarnámskeið
Félagar Sauðfjárræktarfélags Helgafellssveitar og nágrennis brugðu sér á skólabekk á fimmtudagskvöldið 2. Nóv.
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson var að kenna okkur að holdstiga sauðfé.
Mjög fræðandi námskeið og voru allir sammála um að þörf var á þessu framtaki.
Skólabókin á námskeiðinu ásamt mjög góðu námsefni á blöðum, ef menn vilja átta sig betur á eru í bókinni mjög góðar upplýsingar, og þessa bók er nauðsynlegt að eiga. |
.
- 1