Blog records: 2012 N/A Blog|Month_9
23.09.2012 21:20
Hrútasýning
Hrútasýning félagsins verður á Hraunhálsi
Sunnudaginn 30. September kl. 13:00
Keppt verður um hyrnda, kollótta og mislita veturgamla hrúta.
Einnig er keppt um þrjá bestu lambhrútana óháð hornalagi og lit.
Kaffiveitingar og verðlaunaafhending.
Þetta verður hörkuspennandi keppni.
Allir velkomnir.
Keppt verður um hyrnda, kollótta og mislita veturgamla hrúta.
Einnig er keppt um þrjá bestu lambhrútana óháð hornalagi og lit.
Kaffiveitingar og verðlaunaafhending.
Þetta verður hörkuspennandi keppni.
Allir velkomnir.
Written by Helgu.
17.09.2012 14:23
Lambaskoðun.
Lambaskoðun verður í Nýræktinni, fimmtudaginn 20. September kl. 9.00
í Holtaseli
T.v. Púkasonur í miðju Gosasonur og t.h. Nökkvasonur.
Spennandi að sjá stigun á þeim.
Written by Helgu.
16.09.2012 17:40
Reglubrjótar
Það getur orðið mikið tjón fyrir sauðfjárræktina á Íslandi ef að hún missir hreinu hólfin sem allir geta sótt í líflömb. Og ekki síður okkur á Snæfellsnesi fyrir vestan sauðfjárveikivarnargirðingu ef henni er ekki haldið við. Við erum í hreinu hólfi og höfum leyfi fyrir sölu á líflömbum.
Hvar eru peningarnir eru þeir ekki til eða eru þeir notaðir í eitthvað annað, er reglu- og eftirlitsbáknið að soga allt til sín hver veit. Á að halda þessum hreinu hólfum afgirtum eða ekki, ef girðingarnar eiga að vera þá verður að halda þeim við, það er ekki nóg að setja reglur það þarf að koma fjármagn.
Það var réttað í Arnarhólsrétt 16. september og voru þar 8 kindur sem eiga heima fyrir austan girðingu komnar vestur fyrir og sumar langt að komnar.
Þetta er óþolandi !!!
Reglubrjótar í Arnarhóls rétt
Written by Eiríki
14.09.2012 18:04
Fundargerð
Fundargerð frá fundi 12.09 2012 fundarg. 12 09 2012.docx
Written by Brynjari
13.09.2012 14:21
Kynbótahrútur
Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrennis
óskar eftir að kaupa lambhrút.
Höfum leyfi til kaupanna í Öræfahólfi og Strandahólfi.
Hrúturinn þarf að vera hvítur, hyrndur, gott kynbótamat fyrir frjósemi, (mjólkurlaginn) mjólkurlagni, og kjötgæði, gefa góðan vænleika, hátt stigaður.
Sama sem, næstum fullkominn í alla staði.
Upplýsingar gefur Eiríkur Helgasson í síma 6911080
Boðið verður í réttan grip.
Allir að ýta á líkar þetta takkann svo auglýsingin berist hratt og vel.
Written by Helgu.
- 1
- 2
Today's page views: 914
Today's unique visitors: 67
Yesterday's page views: 791
Yesterday's unique visitors: 85
Total page views: 156332
Total unique visitors: 22678
Updated numbers: 19.5.2024 18:45:24