Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrennis

Félag með metnað

Um:

Formaður: Lára Björg Björgvinsdóttir Ritari: Valdimar Kúld Björnsson Gjaldkeri: Guðrún K. Reynisdóttir Umsjón með heimasíðu: Sumarliði Ásgeirsson Ferðanefnd: Þorsteinn Kúld Björnsson og Gunnar Jónsson Fræðslufulltrúi: Harpa Björk Eiríksdóttir Reikn. Sauðfjárræktarfél. 0309-13-300141 Kt.150657-5639 Hrútafélagið Jökull 0309-13-300140 Kt.150657-5639

Tenglar

04.10.2017 13:16

Héraðssýning lambhrúta 2017

Af heimasíðu Búa

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi 2017

 

Fyrri sýningin fer fram föstudaginn 13.október á Haukatungu Syðri 2 í Kolbeinsstaðarhreppi og hefst kl 20:30.

 

Áframhald fer framm laugardaginn 14.október á Hömrum Grundarfirði og hefst kl 13:00.

Á þeirri sýningu verða veitingar í boði geng vægu gjaldi til að fá aðeins upp í kostnað sýningarinnar.

Það verður sem sagt 500 kr á mann ef menn vilja gæða sér á kræsingum og kaffi og að sjálfsögðu

verður frítt fyrir börn.

 

Það verður svo áfram lambahappdrættið sem vakti svo mikla lukku og skemmtun.                         

Þeir sem hafa áhuga á að krækja sér í miða þá mun miðinn kosta 1000 kr. Vegleg verðlaun í boði.

Engin posi verður á staðnum.

 

Verðlauna afhending verður svo að lokinni sýningu á Hömrum Eyrarsveit  fyrir báðar sýningarnar.

 

Allir velkomnir og áhugafólk um sauðfjárrækt auðvitað kvatt til að mæta með sína gripi og sjá aðra.

Það verður mikið spáð og þukklað.

 

 

Reglur vegna lambhrútasýningar á Snæfellsnesi. 
* Þetta er eingöngu sýning á lambhrútum. 
* Hrútar verða að vera fæddir á Snæfellsnesi og því má ekki koma með aðkeypta hrúta. 
* Allir hrúta skulu vera stigaðir, þeir verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun. 
* Nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki gert, er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni. 
* Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki. Þ.e. 3 kollótta, 3 hyrnda, og 3 mislita og/eða ferhyrnda. 
* Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við um mislita og ferhyrnda hrúta. 

 

Sjáumst hress og kát og eigum góðan dag saman.

 

Hér er gimbur sem var í verðlaun árið 2015 í happdrættinu svo það verður spennandi að sjá 

hvað verður í vinning núna.

 

Flettingar í dag: 672
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 156090
Samtals gestir: 22657
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 14:48:37