22.01.2013 15:47
Bjarnarhöfn - hundar
Allt að fara í hundana hjá okkur í Bjarnarhöfn ?
Í ársbyrjun 2001 fengum við fyrsta Border Collie hvolpinn okkar,
tömdum hann um sumarið og gerði hann mikið gagn strax fyrsta haustið.
Hann reyndist mjög vel í allri kindavinnu, bæði í leitum og vinnu heimavið.
Síðan höfum við alltaf verið með einn til tvo hunda og geldfé í hólfi til að þjálfa
þá í, í fyrstu bara yfir sumarið en núorði mest allt árið.
Nú eru hundarnir orðnir þrír.
Patti sjö ára frá Þóru í Görðum. Yfirvegaður en grjótharður,
hvort sem þarf að ná óþekkum klettarollum eða bara færa lambær milli hólfa.
|
Gulli á öðru ári, fyrrverandi malbikshundur sem kom til okkar í sumar.
Meiningin var að temja hann og selja svo, ef hann yrði nógu góður.
Það hefur gengið mjög vel með hann og hæpið að við tímum að láta hann.
|
Þrist frá Daðastöðum gaf frúin mér í afmælisgjöf og kom hann hingað í byrjun des.
Hann hefur gríðarlegan áhuga á kindum og vildi strax fá að hjálpa til.
|
Fyrir um ári síðan fórum við að taka að okkur hunda í tamningu, þá eru stundum
tveir til þrír auka hundar á bænum og mikið fjör.
Þetta er Lotta hans Eiríks Helga.
Flott tík, með mikla orku sem þarf að hemja og kenna henni að nota á réttan hátt.
|
Hér stilla Gulli og Patti sér upp með tveimur nemum.
|
Nemarnir heita Bingó og Gufa og eru frá Fremri Gufudal..
Töluverð eftirspurn er eftir tamningu ,enda margir sauðfjárbændur sem hafa hug á
að koma sér upp fjárhundi eða endurnýja þann gamla en hafa ekki aðstæður
til að sinna honum sem skyldi.
Skrifað af Brynjar Hildibrandsson
Flettingar í dag: 795
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 156213
Samtals gestir: 22670
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:49:48