Sauðfjárræktarfélag Helgafellssveitar og nágrennis

Félag með metnað

Um:

Formaður: Lára Björg Björgvinsdóttir Ritari: Valdimar Kúld Björnsson Gjaldkeri: Guðrún K. Reynisdóttir Umsjón með heimasíðu: Sumarliði Ásgeirsson Ferðanefnd: Þorsteinn Kúld Björnsson og Gunnar Jónsson Fræðslufulltrúi: Harpa Björk Eiríksdóttir Reikn. Sauðfjárræktarfél. 0309-13-300141 Kt.150657-5639 Hrútafélagið Jökull 0309-13-300140 Kt.150657-5639

Tenglar

09.10.2012 18:55

Réttir í Bjarnarhöfn.

Ég fór í réttir og smá smal og tók myndavélina með.

Leitir og réttir voru í Bjarnarhöfn helgina 21-23. September.
Met var slegið, þegar gengið var á fjallið á laugardagsmorguninn og þremur tímum síðar var féð komið heim. Það gerist varla betra.
Svo var réttað að venju eftir að borið var í fólkið góða, kjarnmikla kjötsúpu og kræsingar.
Svakalega flott hjá ykkur Sigga og Brynjar.



Hér eru um 400 ær.

Sjá hér myndir.

Sigga og Brynjar eiga hrútinn sem vann
 hyrnda flokkinn á sýningu félagsins.
Til hamingju.

Ómvöðvinn á þessum hrút er 42 mm og sést hér í ómsjánni hjá Torfa á hrútasýningunni, þetta er enginn smá vöðvi.

Sést kanski betur hérna á neðri myndinni en frá x og beint niður er þykktin á hryggvöðvanum og fyrir ofan x að + er fitulagið ofaná.



Flettingar í dag: 893
Gestir í dag: 63
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 156311
Samtals gestir: 22674
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 18:14:22