11.01.2009 17:41
Fjörulallinn
Þessi þjóðsaga á vel við nú í lok fengitíma. Þar sem fjörubeit var, þurfti að hafa góða gát á fénu á fengitíma, því að til var kvikindi, sem var á stærð við sauðkind og var kallað fjörulalli. Hann lá á því lúalagi að vera áleitinn við ærnar. Lömb þau, sem undan honum komu, voru máttlaus að aftan og oft vansköpuð. Einkum þótti verða vart við fjörulallann í Breiðafjarðareyjum og á Vestfjörðum. ( Máttleysið er fjöruskjögrið, sem stafar af koparskorti).
Skrifað af Eiríki Helgasyni
Flettingar í dag: 470
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 155888
Samtals gestir: 22644
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 10:53:29