Færslur: 2012 Maí
09.05.2012 20:43
Frá Hvarfi.
Púki 06-807
Ég tók nokkrar myndir af lömbunum okkar úr sæðingum í veðurblíðunni í dag.
Hér eru lömb undan púka 06-807

Móðir er Ugla 06-007 Faðir hennar er Freyr frá Berserkseyri
Gimbur og hútur hjá Uglu.
Gimbur og hútur hjá Uglu.
Skrifað af Helgu.
09.05.2012 12:30
Frá Hvarfi.
Hér á hann fleiri lömb.
Móðir er Budda 10-019 Faðir hennar er Póló 09-151 frá Fáskrúðarbakka.
Tveir hrútar hjá Buddu.
Skrifað af Helgu.
09.05.2012 11:00
Frá Hvarfi.
Síðustu lömbin undan púka hrútur og gimbur.
Móðir er Skrofa 07-008. Faðir hennar er Kveikur 05-965 frá Hesti.
Það eru í heild 6 lömb undan púka og kynjahlutföllin hefðu mátt vera aðeins hagstæðari, en svo sem allt í lagi 4 hrútar og 2 gimbrar.
Skrifað af Helgu.
05.05.2012 10:18
Fallegt kvöld í Nýræktinni.
Háttatími á himnum.
Hvað gerir sólin þegar hún sest á kvöldin?
Háttar litlu geislana
oní himinsængina
og fyrir stóru gluggana
hún dregur stjörnutjöldin,
það gerir sólin á kvöldin.
Hvað gerir tunglið þegar það tekur völdin?
Hristir silfurhattinn sinn
svo hrynur úr honum draumurinn
og sáldrast yfir koll og kinn
er sefur barnafjöldinn,
það gerir tunglið á kvöldin.
Ljóð Olga Guðrún Árnadóttir

Mynd Helga
Skrifað af Helgu.
02.05.2012 19:25
Frá Hvarfi.
Íslenska sauðkindin er alveg mögnuð og ótrúlegustu hlutir koma uppá.
Það má segja það að kindin Gjöf sé að verða löng saga því það er alltaf eitthvað sem segja má frá henni.
Gjöf 08-012
F: Gjafi 07-507 Kjalvegi FF: Sprettur 05-389 Kjalvegi MF: Klettur 05-505 Hólatúni.
Það gekk ekki þrautalaust að komast í heiminn fyrir albróðir Kolbeins.
Við vissum það að móðir Kolbeins hún Gjöf væri einlemd eftir sónartalningu sem stóðst alveg en við áttum aukalamb sem við vildum koma undir hana.
Eftir miklar vangaveltur og góð ráð frá góðum vinum var ákveðið að nota saltpækilsaðferðina. Hún tók lambið og var ægilega ánægð og hélt hún væri búin að bera en það var nú öðru nær, ekki gekk að ná hennar lambi út svo þá varð að hafa samband við Hjalta, nýja dýralækninn okkar,en hann er sem betur fer hér í Stykkishólmi, og það var ákveðið að framkvæma keisaraskurð sem gekk alveg prýðilega og báðum heilsast mjög vel. En þá var spurning hvort hún vildi tökulambið aftur þegar heim var komið því við skildum það eftir, en hún efaðist ekki um það lamb og þau voru sátt og sæl eftir allt saman.
Gjöf 08-012 eigandi Ármann Guðni Hallvarðsson
Kóngur heitir hann segir eigandinn.
Þetta hrútlamb er alveg ný sort ekkert líkur bróður sínum nema kanski liturinn, mjög háfættur, en sennilega er stærðin að plata mann, Kolbeinn var töluvert minni.
Hér er svo litla fjölskyldan, sumir stærri en aðrir og sumir 5 dögum eldri en aðrir.
Þetta var nú svolítið ævintýri fyrir okkur, við höfum aldrei lent með kind í keisara.

- 1
- 2
Flettingar í dag: 779
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 156197
Samtals gestir: 22666
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:21:08