Flokkur: Ferðir félagsins
11.04.2011 14:45
Skarðsstöð
Í Skarðsstöð hefur verið höfn frá landnámi. Fyrsta fasta verslun í Dalasýslu var þar frá 1890 til 1911. Í dag er Skarðsstöð eina höfnin í Dalabyggð með útgerð.
Salernisaðstaða fyrir ferðamenn er í Skarðsstöð.
Skrifað af Helgu
11.04.2011 14:40
Ólafsdalur
Í Ólafsdal stofnaði Torfi Bjarnason fyrsta búnaðarskóla landsins árið 1880 og rak hann til ársins 1907.
Torfi var mikill atorkumaður og beitti sér fyrir nýjungum og framförum í landbúnaði. Hann flutti inn skoska ljái, smíðaði plóga, kerrur og fleiri landbúnaðartæki, rak tóvinnuverksmiðu ofl. Hann var einnig forgöngumaður í félagsmálum, vann að stofnun búnaðarfélags Dalasýslu 1886 og beitti sér fyrir stofnun kaupfélagsins 1898.
Minnisvarði um Torfa og konu hans, Guðlaugu Zakaríasdóttir er í Ólafsdal.
Rústir útihúsa í Ólafsdal
Í tíð Torfa Bjarnasonar voru mikil umsvif í búskap í Ólafsdal.
Skrifað af Helgu
11.04.2011 14:17
Staðarfell
Staðarfell er gamalt höfuðból. Þar bjó Þórður Gilsson faðir Hvamms-Sturlu, á 12. öld.
Á Staðarfelli var starfræktur húsmæðraskóli frá 1927 til 1976. Magnús Friðriksson og Soffía Gestsdóttir gáfu jörðina í minningu einkasonar síns, Gests og fóstursonar, Magnúsar, til stofnunar húsmæðraskóla.
Nú er rekin endurhæfingarstöð á vegum SÁÁ í húsnæði húsmæðraskólans.
Kirkjan, sem nú stendur, er úr timbri og var vígð 1891.
Skrifað af Helgu
10.04.2011 11:32
Krosshólaborg.
Í Landnámu segir að Auður djúpúðga hafi haft bænahald sitt á Krosshólum og þar lét hún reisa krossa. Auður lagði svo fyrir áður en hún andaðist, að hún skyldi grafin í flæðarmálinu, því hún vildi ekki hvíla í óvígðri mold, og var svo gert.
Allstór steinkross er efst á klettaborginni til minningar um Auði djúpúðgu. Félagsamtök breiðfirskra kvenna höfðu alla forgöngu um minnismerki þetta og fór afhjúpun þess fram á fjölmennri héraðssamkomu þann 8. ágúst 1965.
Skrifað af Helgu.
04.04.2011 22:45
Ferðaáætlun
Hér er ferðanefndin að störfum.
Þorsteinn Kúld Björnsson Hvarfi gjaldkeri , Gunnar Jónsson Álfhól ferðanefnd
FERÐAÁÆTLUN 2011
Farið verður frá Bensó kl. 9
Fyrsta stopp í Búðardal meðan fararstjóri lítur við á Dvaló.
Farið verður þaðan inn Fellsströnd og keyrt inn um efri byggð.
Stoppað verður á útsýnisplani við Langeyjarnesafleggjara og síðan verður keyrt fyrir Klofning.
Stoppað verður að Ballará og fólki hleypt út , sá sem að finnur Snorraskjól, finnur það á því að honum rís hold að þarfalausu einum á ferð, einnig slaknar konum skaut þó einsamlar séu. Verðlaunum heitið fyrir þann sem finnur Snorraskjól.
Geirmundarstaðir ( Þaðan kemur stöðvahrúturinn Hrói 07-836 ) fjárhús skoðað, þar á eftir keyrt niður að Skarðsstöð og því næst farið í Skarðskirkju.
Surtarbrandsnáman skoðuð og eftir það farið beina leið í Ytri Fagradal og snætt Hvannarlamb að hætti Höllu og fjárhúsin skoðuð að sjálfssögðu.
Eftir hvannarlambið verður haldið í Ólafsdal í gamla landbúnaðarskólann.
Að lokum verður komið við í Búðardal og skoðuð ljósmyndasýning Björns Antons Einarssonar.
Áætlaður komutími í Stykkishólm kl. 21
Fararstjóri Héðinn F. Valdimarsson
Fargjald í rútu kr. 3.000- á mann.
Verð á máltíð auglýst síðar.
Með kveðju frá ferðanefndinni.

Skrifað af Helgu ritara ferðanefndar
Flettingar í dag: 795
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 156213
Samtals gestir: 22670
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:49:48